Mánudagskvöld 3day Mér finnst rigningin góð.. tralalalala ohaaa

Hér var skemmtilegur dagur, allt of heitt ... dísus kræst... en allir í lagi og eru farin að passa sig sjálf að drekka vatn og bera á sig sólarvörn.  Þetta var fyrstidagurinn þar sem við mættum í workshop.  Fórum i Cross-Training sem er sambland af allskonar þrekæfingum frá ýmsum iþróttum . Þetta var líka úti, og stelpurnar hreinlega að púla.  En þetta var  hin besta skemmtun líka og mikið hlegið þegar Rósa og Begga ákváðu að taka þátt í einhverri fáránlegri æfingu þar sem maður þurfti að fara í armbeygjustöðu með hendurnar á sleipri mottu og mótaðili tekurí lappir og ýtirmanni áfram eins og hjólbörum.  Við litu ekki vel út.... myndir síðar ;) ef maður treystir sér í það...  Ég nefndi stelpurnar því Villi og Haukur voru ekki með í dag!  Þeim bauðst að fara með Mæju í Ollerup fimleikaskólann að skoða þennan flotta háskóla og fengu að prufa æfingar.  Þeir þurftu ekki að taka lestina heim heldur flugu sjálfir á vængjum og eru enn þarna uppi.  Skilst að þeir séu á leið í háskóla helst sem fyrst !  Skemmtilegt tækifæri fyrir þá að sjá, en því miður komust ekki allir sem vildu, en ákveðið var þá að leyfa þeim að fara með.  

EFtir workshop far farið heim í skóla  (dagarnir eru svoldið langir, það tekur tímana tvenna að ferðast á milli staða og það þarf að borða og allt það....) Fórum síðan í molli´sem er um 3km frá okkur og þar fuku nokkrir seðlar hjá flestum. Þegar við komum heim áttum við rúman klukkutíma í stoppi, krakkarnir byrjaðir að sína hvað var keypt, þegar við fundum smá golu innum svaladyrnar.  Kíktum út, og já... þarna brunuðu að okkur óveðursský,, nokkrir dropar féllu.  Við kölluðum á alla okkar krakka að koma út og áður en varði kom úrhelli..... ALLIR - hvort sem var krakki eða fullorðnir breyttust í æpandi froska og við hlógum, dönsuðum  og sungum í rigningunni.   Hálfpartinn eins og geðveikt fólk svona eftirá að hyggja.... but it was fuuunn W00t jisus... tekið uppá video... ALLT var blautt. Sturtu blautt.

Klukkan 19.30 ætluðum við að taka strætó niður í bæ, - partý í dýragarðinum.  Biðum nokkuð og enginn strætó kom.  Margir orðnir þreyttir þ.a. Begga, Rósa og ca helmingur snéru heim.  Erum í náttfötum, búið að bjóða öðrum deildum inná herbergi að dansa  og hinn helmingur eru að spóka sig í partýinu sem haldið er í zúinu. Það eru margir flokkar hérna í kvöld sem ákváðu ekki að fara, þ.a. þau fengu bara að ráða hvort þau vildu.  Sumir eru með meiri orku en aðrir og það er bara flott ef hægt er að gera öllum til hæfis.  Þetta kvöld er kannski síst, ekki hægt að sleppa næstu kvöldum myndi  ég segja. Wellí well...  sendum inn myndir á morgun.   Minni ykkur á síðuna eurogym2010 á fésinu.

Hér verður ekki sofnað strax, best að drífa sig í partýiið inná herbergi og athuga með litlu englana ! (hefðuð átt að sjá þær máta fötin áðan frá sjoppingspríinu í dag!) Vel hægt að segja að þær gerðu allar góð kaup og allar alsælar með sitt.  (strákarnir hittu okkur þar ogrétt náðu held ég að kaupa sér nokkra hluti.

thats all folks!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ allir saman.

Var að skoða myndband á YouTube frá opnuninni þ.e. æfingin á "flash dance mob".  Ótrúlega gaman að sjá það.  Haldið áfram að skemmta ykkur vel og njótið tímans í botn.

Hlakka alltaf jafn mikið að lesa nýjar fréttir, fer mörgum sinnum inná á dag!!!

Knús á ykkur öll

Nína (IP-tala skráð) 12.7.2010 kl. 21:45

2 identicon

Hæ, segi eins og Nína, svakalega gaman að fylgjas með ykkur héðan af klakanum :)

Vona að framhaldið verði eins skemmtilegt og er greinilega búið að vera.

Ása Hrund (IP-tala skráð) 12.7.2010 kl. 23:37

3 identicon

Juminn eini hvað það hlýtur að vera gaman hjá ykkur. Rosa gaman að lesa bloggið og skoða myndir.

Hafið það áfram rosa gott og skemmtið ykkur alveg heilan helling.

Bið að heilsa fallega unganum mínum

Kv. Jóna

Jóna (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 08:02

4 identicon

Virkilega gaman að lesa bloggið og fylgjast með ykkur :)

Hafið það gott og góða skemmtun áfram

bkv. Ósk

Ósk (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 08:54

5 identicon

Endalaust gaman að lesa bloggið ykkar og fá þannig ferðasöguna  Hlakka til að sjá nýjar myndir.

Kossar og knús, Helga Hildur

Helga Hildur (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 10:17

6 identicon

Frábært að fá að fylgjast með ykkur, þið eruð algjörlega frábær! Begga er svo dugleg að að segja okkur hinum frá og takk fyrir það! Skoða á hverjum degi, gaman að sjá þegar koma fréttir og myndir.                    

Kveðja,

Erla.

Erla Ásgríms (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 13:54

7 identicon

Nína,á youtube.  geturðu sent linkinn hingað ??!!  væri gaman að sjá það

begga (IP-tala skráð) 13.7.2010 kl. 20:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband