13.4.2011 | 10:06
PARTÝ PARTÝ PARTÝ 18.APRÍL...
Bloggar | Breytt 15.4.2011 kl. 10:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
15.7.2010 | 21:57
KÖTTUR ÚT Í MÝRI, SETTI UPPÁ SIG STÝRI - ÚTI ER ÆVINTÝRI...
JÁ, sitjum hér öll og bloggum saman. Flestir búnir að pakka sitt dót niður og lokanótt bíður okkar. Komum heim um 23.00 í kvöld eftir frábært lokakvöld. Sáum fyrst lokasýningu þar sem okkar fólk tók l´ka þátt í, en þau voru KarenBrá, Olga, AnitaS AnitaR, Anna, Ingibjörg og Louisa. Síðantók við besta ball ever, að þeirra sögn. omg þetta var geðveikt stuð. Vildu ekki fara heim. Allir gengu á okkar fólk .ba ð um að skipta peysum, bolum og mörg okkar skiptust á bolum, en aðeins Haukur og Villi skiptust á peysum við Frakka.
Allir eru ánægðir en hlakka til aðkoma heim... s.s.flestir ekki allir. Sumir vilja vera eftir.
Tivolí á morgun,ræs kl. 6.30 ´ Góða nótt öllsömul. Bestu bestu kveðjur frá öllum hér og við ÞÖKKUM INNILEGA FYRIR KVEÐJURNAR YKKUR - ÞÆR HAFA SKIPT MIKLU MÁLI!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
14.7.2010 | 21:33
Óskalisti!!!!!!!!!!!!! foreldrar lesa ;)
Krakkarnir senda ykkur foreldrum óskalista ef hægt er :
semsagt hvað þau langar í - eru orðin svoldin langeygð í matinn heima eftir þessa miklu törn og öðrum þægindum
Karen Brá = Knús og ískalt vatn.
Máney Dögg= Lasagna og eitthvað gott að drekka. Hlýtt og gott rúm.
Hildigunnur = Pasta og hvítlauksbrauð - það sem mamma gerir og ískalt vatn
Ingunn Kara = McDonalds = já vertu bara áfram úti... ætlar aðkaupa sér kælibox og fylla m borgurum
Andrea = bara pizzu!
Rakel = Dominos pizza!
Sigurbjörg = Nautakjöt - RAUTT RAUTT RAUTT
Anna Kristín = Lilja á að elda læri!!
Karlotta = Heitt bað og hlýtt rúm.
Sólný Sif = Tilbúið DVD FRIENDS 9. season - Dominos pizzu og appelsín!
Anita Sif= Japanskakjúklingaréttinn!
Ólöf Birna = Nudd og plokkfisk !
Helga Rún = Grillkjöt ekki einhvern helvítis plokkfisk!
Brynja = Grillkjöt og piparsósu, ískrap!
Elva D = Grillað lambakjöt, sósuna MÍNA - væri samt ekkert óánægð með humar á Argentínu ( hvernig er þessi stúlka uppalin eignlega!! LOL )
Rósa þjálfari= Steik m. bakaðir kartöflu og góðri sósu og eitthv. gott að drekka með!
Olga = Sjáumst bara eftir viku!!
Louisa = Eitthvað sem pabbi gerir !
Fleiri eru ekki í bili í herberginu, koma örugglega fleiri inn síðar.
p.s. vorum að koma af kvöldvöku, héldum hana úti á grasi. Krakkarnir voru settir í 5 manna hópa í byrjun, og núna fyrst voru þeir nýttir þannig séð og þau þurftu að búa til atriði fyrir kvöldvökuna. jiii þessir krakkar eru FRÁBÆRIR... við vorum algjört bíó, við mömmurnar og Rósa þjálfari. Vorum með atriði
Krakkarnir fengur líka verðlaunapeninga frá okkur með frönsku ívafi - voru skýrð uppánýtt! Húmor sem fylgir ferðinni að sjálfsögðu!
Brynja - Le Tuss
Louisa - Le Fly
Rakel - Le Happy
Anna Kristín - Le Pempi
Ólöf Rún - Le Laugh
Ólöf Birna - Le Hagsyn
Hildigunnur - Le Nerds
Andrea - Le Screamer
Haukur - Le Stunt
Ingunn - Le McFlurry
Sólny - Le Storyteller
Sigurbjörg - Le Chill
Anita Sif - Le Teaser
Olga - Le Tan
Karen - Le Translator
Alexía - Le Runner
María Ósk - Le Lost
Anita Rut - Le Washer
Villi - Le Bodyguard
Gunnhildur - Le Greek
Máney - Le Redder
Karlotta - Le Timer
Helga - Le Gik
Elva - Le H&M
Ásdís - Le 21
Ingibjörg - Le Púk
Þau fengu öll verðlaunapening sem viðurkenningu með nýju nafni ! LOL
jæja... það eru allir komnir eitthv. framm á gang að vesenast og kl. er 23.30. - erum ekkert að stressa okkur áþessu þó svo að ró ætti að vera k omin 23.00 fáum að sofa út á morgun og it´s A DAY OFF!
THAT´S ALL FOR NOW ;) FRÁBÆRT AÐ FÁ KVEÐJURNAR. SÁTUM ÁÐAN RÉTT Í ÞESSU LÁSUM BLOGGIÐ OG ALLAR ATHUGASEMDIR. þeTTA ER SVONA STORYTELLING Á HVERJU KVÖLDI FYRIR ÞAU.. LESA FYRIR SVEFNINN ;)
BESTU KVEÐJUR
MÖMMURNAR ;)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
14.7.2010 | 14:20
Smá stund milli stríða
Erum komnar hér tvær mömmur með krakkana uppí skóla. Smá pása, sumir í sturtu en flestir ruku eitthvað útí garð í sólbað. Það er ALLTOF heitt!! Hélt að við hefðum flogið til Danmerkur... erum við á Spáni ?? Þau sýndu aftur í dag atriðin sín, og gekk mjög vel þrátt fyrir brennandi heitt dansgólf...! Vorum að nefna það að þetta er ágætis æfingí leiðinni að brosa, skila sína og sýna engan sársauka,þrátt fyrir að um leið sé að steikja á þeim iljarnar!
Förum að verða sex að horfa áGALA sýningu þar sem atriði frá mörgum löndum verða sýnd, og þetta eru TOPP atriði. Fimm af foreldrum/þjálfurum urðu eftir í bænum og komameð matinn hingað í skólannsvo þau þurfa ekki að feraðst enn og aftur inní miðbæ í mat.
Nokkrir úr hópnum sýna á lokasýningunni á morgun. Þetta er bara að verða búið?! þ.a. þeir sem verða með í lokasýningu (sýna Funk workshoppið og held að strákarnir fara í Trampoline atriðið) þurfa að æ fa frá 14.00 og restin hittir þau á lokasýningunni. Ekkert lið fær að senda alla og við buðum þeim hverjir vildu sýna og svo var bara happa glappa hvort okkur tækist að skrá þau. En það tókst.
Jæja, ætla að reyna að dwlda myndum.
Anita Rut biður mömmu sína að ekki gleyma að leggja inn á debetkortið.
Elva Dögg biður um það sama!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.7.2010 | 22:35
Þriðjudagur 4dagur - og enn er sungið og dansað....
Jii maður veit varla hvað á að segja meira, nema það að sagan og ævintýrið heldur áfram. Dagurinn var langur hjá krökkunum. Voru að í 13 tíma. Vissum fyrirfram að dagurinn yrði langur. Voru í tveimur workshopum í dag. Ræs var kl. 6.45, og brottför frá skóla kl. 08.00. Fyrst var farið í Taichi við misdræmar undirtektir. áttu að leika tré, jin/jan æfingar og margir ekki alveg tilbúnir í það. Eftir 30 mín hlé var farið í Funk sem var geggjað stuð. Eftir það var farið í sturtu, borðað mat og spókað sig í miðbænum. Að sjálfsögu var rokið án útúrsnúninga í H&M í miðbænum, og enn var gert góð kaup. Ef maður hugsar málið.... mikið rosalega held ég að þetta sé í genunumm.. þetta sjoppinggen. Ég trúi þvi´ekki að stelpurnar hafi farið í margar shoppingferðir erlendis,,, en ómægot... þær hafa þetta alveg í sér. rjúka áfram, og eru snillingar. Anita Sif hafði orð á því að enn væri ekki kominn tími í ferðinni til að dressa sig upp en allir verða ánægðir á morgu. Gala sýningin hefst kl. 18.00 og þá hafa allir tíma frá um 15.00 að dúlla sér að gera sig klára.
Við sýndum okkar fyrstu sýningu í dag kl. 18.50 á miðju torgi. Sýningin var hin glæsilegasta. Gerðum okkur bara til niður í garði (kongengs Have) Tónleikar byrjuðu kl. 20.00 Um 19.30 vildu flestallir fara heim... ca 7 enduðu á tó nleikunummeð Rósu og Mæju. Restin fór heim í strætó,e iginlega vildu chilla og taka því rólega úti í garði. En maður veit aldrei hvernig dagurinn endar... Nágrannar voru fl uttir inn í eitt herbergið okkar þegar heim var komið!! Enginn var neitt sérstaklega ánægður nema Villi, sem tók myndir í gríð og erg. Maurarnir frá garðinum voru með herlið inni að vinna við að flytja epli út! og litila ógeðið. Við fylgdumst með og þetta var ekki nóg.. voru komnir í töskur hjá stelpunum. Og hvernig er þetta. erum við ekki að segja hlutina þúsund sinnum... ganga frá ekki skilja eftir bréf, ekki hafa sælgæti opið... ... Það fór yfir klukkutími hjá Beggu og stelpunum að þrífa og taka dót út... en nú er kanill kominn sem virki fyrir maurana, ættu ekki að komast inn. ALLT sælgæti og matur er bannaður hér eftir í stofunum (hefðum náttl átt að setja þær reglur strax), Við löbbum bara út um svaladyrnar og f áum okkur góðgæti hér eftir. Það eiga allir FULLT af nasli, súkkulaði ofl. Maturinn er alveg ágætur, en alltaf sumir sem eru matvandir. Morgunmaturinn er mjöög vel útilátinn, alltaf ávextir í boði og heitur matur í hádegi en kaldur á kvöldin.
Klukkan er orðin 00.30 því miður koma ekki myndir. myndavél vantar hleðslu og tekur langa tíma að setja inn. Lofa þeim á morgun. Ræs eftir 5 tíma. Bestu kveðjur frá ÖLLUM hér í hópnum til ykkar. Vill láta vita að endilega sendið inn kveðjur, það býða margir eftir skilaboðum frá sínum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
12.7.2010 | 19:04
Mánudagskvöld 3day Mér finnst rigningin góð.. tralalalala ohaaa
Hér var skemmtilegur dagur, allt of heitt ... dísus kræst... en allir í lagi og eru farin að passa sig sjálf að drekka vatn og bera á sig sólarvörn. Þetta var fyrstidagurinn þar sem við mættum í workshop. Fórum i Cross-Training sem er sambland af allskonar þrekæfingum frá ýmsum iþróttum . Þetta var líka úti, og stelpurnar hreinlega að púla. En þetta var hin besta skemmtun líka og mikið hlegið þegar Rósa og Begga ákváðu að taka þátt í einhverri fáránlegri æfingu þar sem maður þurfti að fara í armbeygjustöðu með hendurnar á sleipri mottu og mótaðili tekurí lappir og ýtirmanni áfram eins og hjólbörum. Við litu ekki vel út.... myndir síðar ;) ef maður treystir sér í það... Ég nefndi stelpurnar því Villi og Haukur voru ekki með í dag! Þeim bauðst að fara með Mæju í Ollerup fimleikaskólann að skoða þennan flotta háskóla og fengu að prufa æfingar. Þeir þurftu ekki að taka lestina heim heldur flugu sjálfir á vængjum og eru enn þarna uppi. Skilst að þeir séu á leið í háskóla helst sem fyrst ! Skemmtilegt tækifæri fyrir þá að sjá, en því miður komust ekki allir sem vildu, en ákveðið var þá að leyfa þeim að fara með.
EFtir workshop far farið heim í skóla (dagarnir eru svoldið langir, það tekur tímana tvenna að ferðast á milli staða og það þarf að borða og allt það....) Fórum síðan í molli´sem er um 3km frá okkur og þar fuku nokkrir seðlar hjá flestum. Þegar við komum heim áttum við rúman klukkutíma í stoppi, krakkarnir byrjaðir að sína hvað var keypt, þegar við fundum smá golu innum svaladyrnar. Kíktum út, og já... þarna brunuðu að okkur óveðursský,, nokkrir dropar féllu. Við kölluðum á alla okkar krakka að koma út og áður en varði kom úrhelli..... ALLIR - hvort sem var krakki eða fullorðnir breyttust í æpandi froska og við hlógum, dönsuðum og sungum í rigningunni. Hálfpartinn eins og geðveikt fólk svona eftirá að hyggja.... but it was fuuunn jisus... tekið uppá video... ALLT var blautt. Sturtu blautt.
Klukkan 19.30 ætluðum við að taka strætó niður í bæ, - partý í dýragarðinum. Biðum nokkuð og enginn strætó kom. Margir orðnir þreyttir þ.a. Begga, Rósa og ca helmingur snéru heim. Erum í náttfötum, búið að bjóða öðrum deildum inná herbergi að dansa og hinn helmingur eru að spóka sig í partýinu sem haldið er í zúinu. Það eru margir flokkar hérna í kvöld sem ákváðu ekki að fara, þ.a. þau fengu bara að ráða hvort þau vildu. Sumir eru með meiri orku en aðrir og það er bara flott ef hægt er að gera öllum til hæfis. Þetta kvöld er kannski síst, ekki hægt að sleppa næstu kvöldum myndi ég segja. Wellí well... sendum inn myndir á morgun. Minni ykkur á síðuna eurogym2010 á fésinu.
Hér verður ekki sofnað strax, best að drífa sig í partýiið inná herbergi og athuga með litlu englana ! (hefðuð átt að sjá þær máta fötin áðan frá sjoppingspríinu í dag!) Vel hægt að segja að þær gerðu allar góð kaup og allar alsælar með sitt. (strákarnir hittu okkur þar ogrétt náðu held ég að kaupa sér nokkra hluti.
thats all folks!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
11.7.2010 | 21:34
Sunnudagskvöld - hvaðan koma þessir flottu krakkar!
Jæja, loksins erum við komin upp í skóla eftir frábæran dag. Slökuðum á í byrjun dags og tókum rútu frá skólanum 13.00 niður að Kongens Have. Þar hittust ÖLL löndin og skemmtu sér til 17.00. Stelpurnar vöktu eftirtekt og þurftum við eftir 1 tíma eða svo að benda frönsk strákunum frá stelpunum, þeir voru eins og flugur á mykjuhaug, (kannski ekki beint rétta lýsingin, þær ilma vel og eru fallegar)!! Begga gaf þeim augn aráð gekk inn í hópiinn og þeir héldu sig í fjarlægð það sem eftir var. Það má taka fram að OKKAR hópur er FLOTTUR. Þið eigið hressa krakka sem eru vel uppaldnir og við mömmurnar horfum á hvor aðra og segjum aftur og aftur, hvaðan koma þau þau eru æðisleg! kurteis, ganga mun betur um en "sumir" frá íslandi..eða "allir" .... en m aður má náttúrulega ekki segja svona :) Áður en farið var hingað kom á youtube dans sem öll liðin áttu aðlæra, og svo verður hann dansaður um allt, þegar músíkin við lagið hljómar. Vill segja ykkur frá að okkar kunna dansinn best!! sum íslensku liðin horfa öfundaraugum á þau, því einhvernveginn lærðu þau ekki dansinn...h mmmmm.... þ.a. við vorum með speaker og ipod og þau voru endalaust eða kennam mörgum löndum og þannig hafa þau KYNNST fullt af hressum krökkum. t.d. greece, suisse, íslandi, þýskalandi, portúgal, Sweden, Belgie, Italíu...
Skrúðgangan var rosaflott og stemmning, og rooosssa löng 4500 manns. Á setningarhátíðinni var mob dansinn sýndur og okkar krakkar hlupu niður á leikvanginn og dönsuðu með ásamt mörgum öðrum löndum.... og hvað segjum við... þau báru af.... maður hljómar her svoldið væminn en truly...
Jæja,,, hér sitja allir í kringum mig , á að vera komin ró... ætla að lesa þetta upp f. þauog downl. myndum fyrir ykkur. Þeir sem ekki hafa tekið eftir, endilega kíkið á "myndir"´hér á síðunni.
Elva Dögg óskar litlu systur sinni Agnesi Perlu innilega til hamingju með afmælið á morgun !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
10.7.2010 | 19:29
Laugardagskvöld komið og allir dauðþreyttir eftir lannnnggan dag
Sæl öllsömul.
Við erum loksins komin heim eftir langan dag í bænum. Ferðin gekk vel frá Íslandi og var mikið stuð á hópnum í vélinni og lítið sem ekkert sofið. Skilst að mjög fáir hafi gleymt sér. Við lentum akkúrat á slaginu sex á staðartíma og rútur biðu eftir hópnum sem fluttu okkur til óþinsvéa. Þegar að skólanum var komið þá kom í ljós að við fengum 2 skólastofur í stað þriggja og er legið mjög þröngt. Við vonuðumst að grislíngarnir væru tilbúnir að leggja sig, en nei, heldur betur ekki. Útfrá stofunum er hægt að ganga út í garð, líkt og svaladyr, og þau voru eins og beljurnar á vorin, strax í bikini löggst út, og farin að leika sér!! ENgin vildi leggja sig, allt of heitt, eiginlega rosalega heitt, þ.a. ákveðið var að eyða deginum í sundlaugagarði. DAgurinn fór s.s. í það að stökkva og sýna listir sínar á fjórum mismunandi stökkbrettum beint ofan í ískalda laugina. (það var gaman að sjá hversu mikið þau pældu í verðinu, gosglasið í garðinum kostaði 600kr ) og þið megið vera stolt af því hversu hagvæm og sparsöm þau voru. Um 4 leytið var ákveðið að halda för áfram og fórum í Bus að miðbæ (eftir þó nokkuð labb frá sundlaug). Borðuðum saman á Mexíkönskum veitingastað og var farið að síga allverulega í hópinn.... Búin að vera eftir sólríkan dag, öll ósofin. Mesta furða hvað þau í raun voru búin að vera hress. Að mati loknum ætluðum við að ná Bus heim og tók aðeins lengri tíma að bíða eftir honum. Víðsvegar sáum við hópa sem voru nýkomnir í bæinn. Öll með merki um hálsinn og sjáum fánalitina m.a. á spjöldunum. Meðan við vorum að bíða eftir Bus, þá sátum við á torginu (Kongens Have) miðsvæði, og þar var grískur hópur að æfa sig. Haukur og Villi fóru að sýna sína hæfileika og áður en varði voru hóparnir farnir að kenna hvor öðrum trikk og trix. Hrikalega flott og gaman. Það er komin ró hér í stofunni, allir búnir á því. Opið út, því það er nánast ólíft hérna inni. Allir eru samt við hestaheilsu. Við höfum passað að þau drekki nægan vökva og við fylgjumst með þeim. Við ætlum ekki að gera neitt sérstakt fyrri part dags á morgun, morgunmatur hér kl. 8 - síðan verður farið niður í bæ fyrir 14.00 því hádegismatur er framreiddur á kongensHave í tjöldum til 14.00. Sjáum fyrir okkur að liggja bara í grasinu, labba um og skoða og horfa á aðra. Þurfum að koma okkur á vissan stað fyrir kl. 17.00 en þá hefst Eurogym með skrúðgöngu.
Olga Ýr óskar mömmu sinni innilega til hamingju með daginn í dag!! Bestu kveðjur til ykkar héðan frá´Óþinsvéum. Þetta lofar mjög góðu. p.s. okkur tókst aðtengja ísskáp sem hér var í skólastofunni. Það eru sjálfboðaliðar hér frammi sem selja kalda drykki, ávexti og nammi.
Góða nótt :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.7.2010 | 09:55
Slóvenski hópurinn
Íslandi barst kveðja frá Slóvenska hópnum sem verður í sama skóla og við.
Sendi inn myndir frá hópnum. - þetta er hópur sem hefur verið mikið með sýningar og eru framarlega með lið í cheerleading í Evrópu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2010 | 10:58
Tivolí - Tivolí - Tivolí
Eins og flestir vita þá hefur verið spurning hvort fara ætti í Tivolí i Kaupmannahöfn síðasta daginn okkar í ferðinni. Þetta var allt óljóst þar sem redda þurfti rútu fyrr frá Óðinsvéum og finna stað fyrir töskurnar. Nú eru málin að skýrast. Má segja að þetta sé um 99% öruggt að úr verði skemmtilegur endir á ferðinni... Já það verður fari í Tivolí. Við geymum töskunarnar á ´Hóteli rétt við Tivolíið, DGI-byen. Allar töskurnar verða geymdar í "fyrirlestrarsal" á hótelinu og því kom tilmæli enn og aftur frá FSÍ = MIKILVÆGT AÐ AÐEINS 1 TASKA SÉ Á MANN!!
Það er búið að taka frá miða fyrir alla íslendingana í Tivolí... Þetta er 170dkr pr mann og innifalið í því er inngangur og frítt í tæki. það eru ca 3740kr
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.7.2010 | 10:25
Hvað skal taka með í STUÐIÐ !!
Það kom fram í Bulletin 3 að iðkendur eiga að koma með 4 boli í litunum Blár, Rauður, Hvítur og Brúnn. EKKI skiptir máli hvernig bolurinn er (stutterma, hlýra, langerma) eða hvaða litur þetta er í uppgefnu litrófi. (BRÚNN MÁ T.D. VERA SVARTUR! - Svoldið ruglingslegt ekki satt ;) )Rauður má vera appelsínugulur eða gulur þessvegna. Þau nota EINHVERN af þessum bolum í LOKASÝNINGU en fer eftir því í hvaða workshop þau sýna sitt atriði. - OG AÐ SJÁLFSÖGÐU GETIÐ ÞIÐ NOTAÐ BOLINA MEÐAN ÞIÐ ERUÐ ÚTI!
Listi
□ Vegabréf
□ Farseðill□ Headsett□ Dýna□ Lak□ Koddi□ Sæng /svefnpoki□ Æfingaföt fyrir workshop□ Föt til skiptanna □ Svartar leggings (skrúðganga) /strákar, æfingabuxur?□ Góðir skór til að ganga í□ Sandalar /inniskór□ 4 bolir fyrir lokaatriði (blár, rauður, brúnn, hvítur)□ Stuttar svartar buxur, og bolurinn (okkar atriði)□ Þunnt handklæði□ Sólarvörn □Sjampó □Hárnæring □Sápa □Rakakrem/aftersun□Hárbursti □teygjur □Hárblásari □Sléttujárn□Tannbursti □Tannkrem □Þvottapoki□Nærföt □Sokkar□ Bikini / sundföt□ Myndavél / ipod□ Nammipoki/kex □Nesti □ GÓÐA SKAPIÐ ! J
Bloggar | Breytt 6.7.2010 kl. 08:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2010 | 09:38
LOKAFUNDUR
Fljúgum:
út: 10.júlí FI201 01:00-06:00 -hittumst við innritum á föstud.kv. kl. 22.30
heimkoma: 16.júl FI217 22:30-23:40 -
(enn ekki klárt hvernig síðasti dagurinn í Danm. verður. Líklegt að farið verði í Tivolí í Köben, en verið er að vinna í því. Annars gerum við eitthvað annað sniðugt).Hér eru glærur af fundinum sem haldinn var mánudaginn 5.júlí :)
TIL GAMANS Setég hér líka nánari útlistun á íslensku sem kemur fram í Bulletin 3 :
Íslenski hópurinn gistir ásamt 33 manna hóp frá Slóveniu í Holluf Pile skole í suð-vesturhluta Odense (merktur með gulum lit), rétt við Arena FYN. Skv.mótshaldara eru max 12 í skólastofu, salernis og sturtuaðstaða á staðnum, 24 tíma vöktun; eitt sameiginlegt öryggisherbergi í skólanum; þrif tvisvar á dag. Ekki er hægt að læsa skólastofunum. Mikilvægt er að kynna allar umgengnisreglur fyrir iðkendum: að virða svefntíma, engin háreysti, passa uppá að allt rusl fari í ruslatunnur, reykingar og áfengir drykkir bannaðir.Sjá reglur frá Danmörku hér á eftir.
Umsjónarmaður skóla:Lene M Sörensens. 30 34 55 53l.m.sorensen@post.tele.dk
Þátttakendur koma með dýnu og svefnpoka (lak og kodda ef vilja).
Á meðan hátíðinni stendur verða sérstakir strætisvagnar fyrir hátíðina auk hefðbundinna strætisvagna. Allir þátttakendur fá frítt í vagnana gegn framvísun þátttökuskírteinis. Stoppustöðin næst okkar gistingu er: leiðir 9- 10- 11-12 GUL lína/leið
Matur
Boðið er upp á mat á vegum Eurogym frá morgunmat sunnudaginn 11.júlí morgunmats föstudags 16.júlí. Þátttakendur munu þurfa sjálfir að sjá um annan mat (ferðadagana 10.júlí og 16.júlí) og þurfa að taka tillit til þess í gjaldeyri. Danir hafa lofað barnvænum mat og þá er það bara í höndum okkar að sýna að við séum veraldarvön. Hópstjórar félaga þurfa að þekkja til ofnæmis ef einhver eru innan hópsins og viðbrögð við einkennum.
Morgunmatur er frá 7:00 9:00 í mötuneyti skólans.
Hádegismatur Sunnudag: í KONGENS HAVE frá 11:00 til 15:00 Aðra daga: frá kl.12:00 14:00 í WORKSHOPS /vinnubúðunum, í Holluf Pile Hallen eða á skautasvæðinu /Skating Arena (Odense idrætspark).
Kvöldmatur:
Sunnudag og fimmtudag: Skating Arena (Odense idrætspark)
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag: kl. 17:00-20:00 í matartjaldi í Kongens Have, rétt við lestarstöðina.
Á opnunarhátíðinni verður kaldur matur í lok hátíðarinnar.
Á lokahátíð verður kaldur matur milli æfingar og sýningar, um kl. 19:00, á Fionia Park.
Dagskrá
Hópstjóra-og fararstjórafundur Sunnudagur 11.júlí kl. 15:00
(Arena FYN) Hópstjórafundir Íslands á hverjum morgni mæta fararstjórar FSÍ á fundi með mótshöldurum, þar er upplýsingum dreift og fyrirspurnir leyfðar. Þar á eftir hittum við hópstjóra félaganna og gefum þeim fengnar upplýsingar. Staðsetning væntanlega á Arena FYN kl. 9:30.
Fundur með þjálfurum á GALA-sýningu Sunnudagur 11.júlí kl. 16:00
(Arena FYN) Skrúðganga Sunnudaginn 11.júlí Uppröðun fyrir skrúðgönguna hefst kl. 17:00. Þátttakendur ganga í skrúðgöngu frá þremur stöðum að íþróttavellinum þar sem opnunarhátíðin fer fram. Frá Kongens Have, Flakhaven og Munke Mose á Fionia Park. Ísland gengur frá Flakhaven.
Allir eiga að vera í Íslandsbúningi (eigin svörtum buxum, Íslands-bol, Íslands-peysu, með bakpoka, regnsláin í poka og eitthvað að drekka). Þeir sem eiga íslenskan fána mæti með hann. Stillt verður upp og gengið 8 eða 10 í röð. 3 km ganga, líf og fjör, söngur og bylgjur. Ísland er sjöunda fjölmennasta þátttökuþjóðin. Við dreifum vel úr okkur og gerum okkur mikil í skrúðgöngunni.
Á opnunarhátíðinni verður kaldur matur í lok hátíðarinnar.
Garðpartý Mánudaginn 12.júlí Öllum þátttakendum er boðið í dýragarðinn. www.odensezoo.dk
Tónleikar í miðbæ Odense Þriðjudaginn 13.júlí Brandts
Eurogym gala miðvikudag 14. Júlí Arena Fyn
Tvær Galasýningar verða önnur kl: 18:30 og hin kl: 21:00. Stúlkur frá Gerplu, Ármanni og FIMA eru fulltrúar Íslands á sýningununni. Æfingar verða sama dag. Innifalið í þátttökuspjaldi er miði á Galasýninguna. Öllum er skipt niður á sýningarnar og fara Íslendingar sem áhorfendur á fyrri sýninguna. Sýnendur sýna á báðum sýningum.Hægt er að kaupa miða á sýningarnar á www.billet.net
Lokahátíð fimmtudag 15. júlí kl.19:00 Odense Idrætspark
Til þess að taka þátt í lokahátíð þurfa þjálfarar að skrá hópana um leið og skráning opnar (upplýsingar fást á fundi miðvikudag). Þjálfarar velja eina af vinnusmiðjunum sem iðkendur hafa tekið þátt í og skráir það á töfluna. Ath. ekki komast nema ákveðið margir í atriðin og því mikilvægt að skrá sem fyrst. Skrá verður fullt nafn hvers þátttakenda.Lokahátíðin verður haldin á leikvanginum, æfingar fyrir lokahátíð verður seinnipartinn 15.júlí og verða iðkendur á svæðinu þangað til hátíðin. Kaldur matur verður í boði einhverntíman milli æfingar og sýningar.
Lokapartý fimmtudag 15.júlí eftir lokahátíðina.Parýið er einungis fyrir þátttakendur með þátttökuspjald- ekki gleyma þátttökuskírteininu. Oft er mikil lagt upp úr að skiptast á einhverju frá sínu landi, merktir stuttermabolir eða jafnvel íþróttagallinn. Leggið línurnar hvað er leyfilegt áður en lagt er af stað. Hafið með litla minjagripi, verið í bol/húfu sem má skrifa á, merki félagsins.
Vinnusmiðjur Arena FYN og Odense Idrætspark
35 mismunandi vinnusmiðjur verða í boði, fyrir hádegi mánudag-miðvikudag, 2 pr/dag með 30 mín. pása á milli. 100 nemendur og 70 þjálfarar frá Ollerup stjórna. Hópstjórar bera ábyrgð á að hópurinn þeirra mæti á úthlutaðar smiðjur síns hóps. Dagskrá hvers hóps verður aðgengileg á netinu.
Útisýningar
Hvert félag sýnir tvisvar og er mikilvægt að mæta ca. 1 klst. fyrir hverja sýningu, láta stjórnendur vita af sér og afhenda cd með tónlist vel merktan landi og félagi. Muna að taka diskinn til baka með sér eftir sýningu. Búningsaðstaða og klósett verða á svæðinu. Hver hópur hefur 10 mín til umráða, með röðun áhalda.
Fyrirlestrar (Forums) fyrir þjálfara, farastjóra og þá sem hafa áhuga
Mánudaginn 12.júlí og þriðjudaginn 13.júlí, eftir hádegi:
- Spotting in tumbling and mini-trampoline
- Implementation of acrobatics in choreography
- Video feedback
Bloggar | Breytt 6.7.2010 kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.6.2010 | 10:04
Fréttabréf no.3 + okkar schedule
sjá í viðhengi fréttabréf no.3 frá Eurogym. Þar er dagsrkáin í heild sinni, kort af svæðinu ofl. Gaman að lesa.
Set hér inn dagskrá sem Keflavík fer eftir. Þið fáið einnig ljósrit af henni á næsta fundi sem haldinn verður áður en við förum út :)
KEFLAVÍK | |
sunday, July 11th | |
12:00 - 14:00 | Lunch - Kongens Have (18) |
17:00 - 18:00 | Meeting point Parade - Flakhaven |
18:00 - 19:00 | Parade |
19:00 - 20:30 | Opening ceremony (14) |
20:30 - 21:30 | Dinner - Odense Isstadion - Icerink 2 (14) |
21:00 - 22:00 | Transport - yellow line (9-10-11-12) |
Monday, July 12th | |
09:30 | Transportation IO (14) |
10:45 - 12:15 | Workshop "Cross fit*" at IO / Hal B |
12:00 - 14:00 | Lunch - Odense Isstadion - Icerink 2 (14) |
13:00 - 15:00 | Forum session 2: Spotting in tumbling at IO / 3. 1 participants from the group |
13:00 - 15:00 | Forum session 3: Video feedback at IO / Teori. 1 participants from the group |
17:00 - 19:00 | Dinner - Kongens Have (18) |
20:00 - 22:00 | Garden party (19) |
21:30 - 22:30 | Transport - yellow line (9-10-11-12) |
Tuesday, July 13th | |
08:00 | Transportation IO (14) |
08:45 - 10:15 | Workshop "Tai Chi" at IO / Hal 1 |
10:45 - 12:15 | Workshop "Funk*" at IO / Hal A |
12:00 - 14:00 | Lunch - Odense Isstadion - Icerink 2 (14) |
13:00 - 15:00 | Forum session 5: Spotting in mini-trampoline at IO / 3. 2 participants from the group |
13:00 - 15:00 | Forum session 6: Video feedback at IO / Teori. 1 participants from the group |
17:00 - 19:00 | Dinner - Kongens Have (18) |
18:50 - 19:00 | Performance: Flakhaven |
20:00 - 22:00 | Koncert Brandts (15) |
21:00 - 23:00 | Transport - yellow line (9-10-11-12) |
Wednesday, July 14th | |
08:00 | Transportation IO (14) |
08:45 - 10:15 | Workshop "Tango-Robic*" at IO / Hal A |
10:45 - 12:15 | Workshop "Trampoline*" at IO / Hal 1 |
12:00 - 14:00 | Lunch - Odense Isstadion - Icerink 2 (14) |
14:00 - 14:10 | Performance: Brandts |
17:00 - 19:00 | Dinner - Holluf Pile Hall (9) |
18:30 - 20:00 | Galla Show 1 - Arena Fyn (13) |
20:00 - 21:00 | Walk |
Thursday, July 15th | |
09:00 - 12:30 | Day off |
12:00 - 14:00 | Lunch - Holluf Pile Hall (9) |
17:30 - 19:00 | Dinner - Odense Isstadion - Icerink 2 (14) |
19:00 - 20:30 | Closing ceremony (14) |
20:30 - 22:00 | Farewell Party |
21:00 - 23:00 | Transport - yellow line (9-10-11-12) |
Friday, July 16th | |
17:45 | Departure from Holluf Pile skole |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.6.2010 | 12:18
MUNA að ná í peysurnar úr merkingu!
Þeir sem fóru með peysurnar í nafnamerkingu. Endilega muna að ná í peysuna. Það kostar 1300kr. merkingin
Bloggar | Breytt 6.7.2010 kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2010 | 09:47
BANKAREIKNINGUR YKKAR- SENDA NÍNU UPPLÝSINGAR!
FORELDRAR. Til þess að hægt sé að senda ykkur peninginn sem auka er, (fyrir flugfarseðlum) þurfið þið að senda Nínu póst SEM FYRST svo hún hafi þetta til taks þegar hún fer í þetta eftir helgi. Nína ætlar að fara yfir stöðuna og út frá því að senda ykkur ef þið eigið inni hjá henni. ÞAÐ ER ÞVÍ MIKILVÆGT AÐ ALLIR SÉU BÚNIR AÐ SKILA IN MARAÞONPENINGI EIGI SÍÐUR EN Í DAG/KVÖLD!!! ÞÁ TIL NÍNU.
ÞAÐ SEM ÞIÐ ÞURFIÐ AÐ SENDA HENNI:
- Bankareikningsnúmer
- kennitölu
- Best að senda tölvupóst "jonnina@simnet.is" eða "jonina.helgadottir@reykjanesbaer.is" eða sms-skilaboð (8984226) eða svara fréttinni á heimasíðunni og setja upplýsingarnar þar.
Einnig að árétta að skila til mín maraþonspeningum þar sem ekki allar eru búnar að skila.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2010 | 08:37
MINNUM Á FUNDINN Á FIMMTUDAG - SKYLDUMÆTING EUROGYMFARA
Ef einhverjir eru með önnur plön þennan dag þarf að breyta því. Skyldumæting.
Nánari upplýsingar sem voru að berast frá Hrund aðalfararstjóra:
SælNæsta fimmtudag, 24.júní verður generalprufa fyrir EUROGYM sýningarnar ykkar og íslenska GALA atriðið (við erum ekki með í Gala atriðinu). Við fengum lánaðan vestari hluta salarins í Gerplu frá kl. 17:00. Öll félögin fá tækifæri til að keyra sitt atriði einu sinni í gegn áður en við bjóðum foreldrum að koma að horfa á kl. 19:15. Eftir sýninguna mæta allir hópstjórar á fund og við förum saman yfir nokkur atriði. Hvert félag fær á generalprufunni 13 mínútur til að æfa/keyra 10 mín sýningu, en á sýningunni eru einungis 10 mínútur pr.félag. Á sýningunum úti verða 10 mín til að stilla upp áhöldum og sýna svo gott er að æfa þetta allt saman á okkar sýningu. Þjálfarar koma með tónlistina á vel merktum geisladiski, einungis sýningaratriðið á diskinum.
Tímaplan:
Generalprufa | Sýning | |
17:00 | almenn upphitun | |
17:15 | FIMA | 19:15 |
17:28 | GERPLA | 19:25 |
17:41 | ÁRMANN | 19:35 |
17:54 | GRÓTTA-ÞÓR | 19:45 |
18:07 | BJÖRK | 19:55 |
18:20 | KEFLAVÍK | 20:05 |
18:33 | SELFOSS | 20:15 |
18:46 | GALA | 20:25 |
18:59 | lok | 20:30 |
myndataka | 20:40 | |
hópstjórafundur |
Stefnt er að því að dreifa bakpokunum til félaga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.6.2010 | 12:28
Bolir sem þið fenguð.....
Eurogymfarar & foreldrar. Vildum minna á að þeir bolir sem keyptir voru og voru notaðir í 17.júní dansinum verða notaðir úti þegar við sýnum okkar atriði. Þannig að endilega PASSIÐ UPPÁ BOLINN
Notið hann ekki fyrr en við förum út, svo við verðum allar flottar í "nýjum" bolum
KLÆÐNAÐUR OKKAR ÞEGAR VIÐ SÝNUM ÚTI VERÐUR:
- HLÝRABOLURINN SEM ÞIÐ ERUÐ BÚNAR AÐ FÁ
- SVARTAR STUTTUBUXUR /STUTTAR LEGGINGS EÐA SVOKALLAÐAR HJÓLABUXUR
ÞEGAR VIÐ FÖRUM ERLENDIS SEM HÓPUR Í FLUGI:
- HVÍTUR BOLUR
- LJÓSBLÁ HENSON RENND PEYSA (afhendum ykkur líklega vikuna f. brottför)
- fengum líka afhentar regnslá (ft. slær ??) ef það verður rigning.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2010 | 12:20
Skila Áheitapeningum til (Mæju) eða NÍNU (mömmu Helgu og Ólöfar) á miðkv. Efstaleiti 26
Þær sem söfnuðu áheitum og hafa þegar fengið peninginn í hendurnar geta skilað honum til Nínu á miðvikudagskvöldið. EF einhverjir hafa skilað inn til Mæju, er það ok. Hún kemur peningnum til Nínu.
Þeir sem eiga EFTIR að rukka inn áheit, fá BLAÐ hjá Mæju sem staðfestir að þið hafið klárað maraþonið. Þið getið þá sýnt það blað þegar þið rukkið þá sem voru að heita á ykkur :) OG UM AÐ GERA AÐ DRÍFA BARA Í ÞVÍ AÐ RUKKA INN Á NÆSTU 2 DÖGUM. VÆRI FLOTT EF ÞAÐ VÆRI BÚIÐ ANNAÐ KVÖLD (.ÞRIÐJUDAGSKVÖLD)
ÞIÐ VORUÐ FRÁBÆRAR STELPUR !! VERÐUR GAMAN AÐ SJÁ HVERSU MIKIÐ SAFNAÐIST, EN ÞAÐ ER LJÓST AÐ YKKUR TÓKST AÐ SAFNA HEEEELLLLINNNG - SVONA Á AÐ GERA ÞETTA!
ÞIÐ ERUÐ FLOTTASTAR!! -
Þær sem geta, endilega sendið beggu myndir í pósti ef þið getið - þær sem voru með myndavélar... begga@kogun.is
Bloggar | Breytt 22.6.2010 kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2010 | 11:28
FIMLEIKAMARAÞON FÖSTD.KV. 18. JÚNÍ frá 20.00-08.00 um morguninn
NÚ ERU ÞEIR SEM MÆTTU Á ÆFINGU BÚNIR AÐ FÁ SÍN HVERFI TIL AÐ GANGA Í, TIL AÐ SAFNA ÁHEITUM. FLESTIR FÓRU Í GÆRKVELDI Í HVERFIN OG EINHVERJIR FARA Í DAG! ÞEIR SEM EINHVERJA HLUTI VEGNA HAFA EKKI SÓTT SITT GETA Í DAG, TALAÐ VIÐ MÆJU Í AKADEMÍU EÐA BEGGU 6618761 TIL AÐ FÁ ÚTHLUTUN - ANNARS ER LITIÐ Á AÐ ÞEIR SÉU EKKI MEÐ.
Hugmynd kom upp að hafa fimleikamaraþon í akademíunni fyrir hópinn.
í Stuttu máli er hugmyndin með þessu að:
- Hver iðkandi safnar áheitum - 2 ganga saman í hverfi og safna áheitum. bjóðum uppá 500-1000, 1500 eða meira. ganga þyrfti í hverfi eftir æfingu þriðjudag og nýta miðvikudaginn.
- Allir mæta tilbúnir að vaka heila nótt. - einnig verður hvílt á milli. koma með svefnpoka.
- Hópefli, - hrista hópinn saman fyrir ferð
- Hópurinn skiptist á að æfa. -einnig verður lögð áhersla á dansinn fyrir Eurogym.
- Í "hlé eða pásum" horft á "make it to break it", eða bara hvílt sig,
- Foreldrar gætu séð um morgunverð eða eitthvað annað ?? AUGLÝSUM HÉR EFTIR FORELDRUM SEM ERU TILBÚNIR AÐ KÍKJA Á STELPURNAR. - 2 ÞJÁLFARAR VERÐA MEÐ HÓPNUM ALLAN TÍMANN.
- ALLAR SKEMMTILEGAR HUGMYNDIR VEL ÞEGNAR, HÖFUM GAMAN Í LEIÐINNI !
- ATHUGIÐ AÐ ÞETTA VERÐUR SAMEIGINLEGUR POTTUR FYRIR ÞÁ SEM TAKA ÞÁTT Í MARAÞONINU. Þ.E. AÐ ALLIR GANGA Í SEM FLEST HÚS OG UPPHÆÐIN DEILIST Á ÞÁ SEM TAKA ÞÁTT.
Bloggar | Breytt 16.6.2010 kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
10.6.2010 | 11:19
17. júní - vinna á skemmtun / sýning !
Eurogymfarar og foreldrar
Næsta fjáröflun er að sjá um leiktæki á 17. júní. Endilega skráið ykkur kæru iðkendur, þeir sem hafa tök á því að vinna þennan dag. Það má EKKI klikka ef þið skráið ykkur að vera með.
Við eigum að taka ábyrgð á tækjum frá skátunum, sem sagt að vakta þau, sjá til þess að krakkar fari inn á einum stað og út á öðrum. Skipt verður upp í 3 hópa:
Leiktæki: Iðkendur Foreldrar: | ||
13:00-14:15 | SólnýS, IngunnK, AnitaR, ÓlöfB, Hildigunnur, AnitaS | Magga, Eva |
14:15-15:30 | ÓlöfR, IngibjÞ, Andrea, KarenB, Sigurbj, Gunnhildur, Louisa, Rakel, Karlotta | Systa, Begga + fleiri til að leysa af frá ca 14:40-15:15 = EVA, SÓLRÚN, ÞÓRA |
15:30-16:45 (17:00) | Brynja, ElvaD, HelgaR, MáneyD, María, Alexía, AnnaK, ÁsdísB, Olga | Gugga, Solla |
DANSATRIÐIÐ SEM EUROGYMFARAR SÝNA VERÐUR KLUKKAN : 14:55-15:10.
VIÐ FORELDRAR VERÐUM AÐ LEYSA AF KRAKKANA Á MEÐAN DANSATRIÐI ER OG SJÁ UM AÐ VINNA VIÐ TÆKIN.
FORELDRAR EF ÞIÐ GETIÐ LEYST KRAKKA AF Á MEÐAN, ENDILEGA SKRÁIÐ YKKUR HÉR AÐ NEÐAN Í ATHUGASEMDUM.
IÐKENDUR, EINNIG SKRÁ SIG
Bloggar | Breytt 16.6.2010 kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)