Færsluflokkur: Bloggar
7.6.2010 | 08:41
Sameiginleg æfing fimmtudaginn 24. júní
Áformað er að halda sameiginlega sýningu fimmtudaginn 24.júní í Laugarbóli Laugardal, (í Ármanni).
- 17:00 upphitun/
- 17:30 generalprufa/
- 19:00 sýning /
- 20:30 fararstjórafundur.
SÍÐASTI FUNDUR MEÐ FORELDRUM VERÐIR EFTIR ÞESSA DAGSETNINGU ÞAR SEM VIÐ ÆTTUM AÐ VERA MEÐ FLEST Á HREINU EFTIR ÞENNAN HÓPSTJÓRAFUND.
Fararstjórar FSÍ
Eru tveir: Hrund Þorgeirsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.
Veður
Danir hafa sent okkur póst og beðið okkur að hafa okkar þátttakendur undirbúin fyrir allavegana veður. Sumarveðrið í Danmörku hefur breyst svo þeir mæla með að gera ráð fyrir rigningu og sól, hafa með regnföt (Fáum regnslá með nýju peysunum), hlýja peysu og sólarvörn!Þeir hafa sent reglur um hegðun og húsreglur. Nánar verður farið yfir það á hópstjórafundinum 24.júní. Frekari upplýsingar frá mótshaldara hafa ekki borist. Um leið og þær koma, verður látið vita hvar við gistum, hvaða strætó á að taka o.þ.h.
Búningar
Peysurnar eru komnar uppí Akademíu. Við verðum að máta þær þessa viku (7.-11.jún) og athuga hvort að við höfum fengið réttar stærðir og merkja hverja peysu og bol iðkanda... EN þær verða EKKI afhentar fyrr en í júlí til þess að tryggja að þær skemmist ekki eða týnist. Sama á við um bolina
Gjaldeyrir:
félögin hafa rætt sín á milli og virðist vera misjafnt hvað þau hafa ákveðið. Við teljum best að miða við 30.000kr - 50.000kr. Við nefnum 30-50 þá miðast 30.000 sem lágmark til að kaupa sér aukamat, sælgæti og aðrar nauðsynjar og þá 20 auka EF áhugi er að fara í H&M. Eins og nefnt hefur verið, þá munu fararstjórar geyma peninginn og deila út á hverjum degi ef þörf er.
Spurningar
Ef spurningar vakna hjá ykkur, iðkendum eða foreldrum þá er sjálfsagt að spyrja og við getum komið þeim áleiðis til Hrundar fararstjóra FSÍ ef við erum ekki með svörin á hreinu. Það eru eflaust margir að spá í því sama.
Bloggar | Breytt 14.6.2010 kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 12:22
Lokið - BERA ÚT BLAÐ fimmtud/föstud.
ENDILEGA SKILIÐ AUKABLÖÐUM EFTIR ÚTBURÐ HEIM TIL BERGLINDAR AÐ MOSDAL 3 Í INNRI NJARÐVÍK !! ÉG LOFAÐI ÞVÍ AÐ VIÐ MYNDUM SKILA AUKABLÖÐUM ÞVÍ ÞEIM VANTAR EINTÖK...
Okkur stendur til boða að bera út Sjómannadagsblaðið sem Samfylkingin gefur út.
Hverfi: Njarðvík - Innri Njarðvík og Vallarhverfi (þ..a þetta ætti ekki að vera of mikið á hvern)
Hvenær: Bera út fimmtudagskvöld og í SÍÐASTA LAGI föstudagskvöld
Afhent: AKADEMÍA - Iðkendur sem eru til í þetta fá afhent blöð og deilt niður á götur strax á eftir EUROGYMÆFINGU KL. 20.00 FIMTMUDAG 3. JÚNÍ.
Þær sem náðu í blöð :Ásdís, Andrea, Sigurbjörg, Gunnhildur, María, Olga Ýr, Alexía, Elva Dögg, Ólöf Rún, Anita Sif, Hildigunnur, Anita Rut, Máney, Rakel, Sólný Sif, Karen Brá, Ingibjörg Þóra, Karen Brá., Ingunn Kara, Karlotta, ÓlöfB og Helga
Bloggar | Breytt 7.6.2010 kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.6.2010 | 11:10
Æfingar fyrir eurogym
Sælar dömur
Æfingar fyrir eurogym byrja strax í dag, kl. 18:00 - 20:00. Ég veit þetta er seint, en við verðum að fara að byrja.
Æfingarnar verða á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 18:00 - 20:00. Þið eigið að mæta á allar æfingar, ef það verða einhver forföll eiga foreldrar ykkar að láta þjálfara vita.
Eurogym kveðja
Mæja 8589868 og Rósa 6596429
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.5.2010 | 10:12
KAUPA FARMIÐA HJÁ ICELANDAIR FYRIR 31.MAÍ
ATHUGIÐ: Greiðslu verður að vera lokið fyrir alla miða 31.maí
Leiðbeiningarfyrir þá sem vilja greiða pakkaferð með greiðslukortumtil að nýta vildarpunkta eða ferðaávísanir. Þeir sem greiða ferð með VISA kreditkorti.Mögulegt er í þessu bókunarferli að nýta 10.000 vildarpunkta sem 6.000.- kr. greiðslu upp í ferð ef viðkomandi á næga punkta og er handhafi vildarkorts VISA. Munið að hafa notendanafn og lykilorð að Vildarklúbbnum við hendina ef nýta á punkta upp í ferð. Handhafar Mastercard fara aðra leið (sjá neðar).
Sláið inn þessa slóð: http://www.icelandair.is/hopar
Síða 1:· Sláðu inn númer hópsins 1237Síða 2:· Allar upplýsingar eiga að vera forskráðar: Nafn hópsins og dagsetningar.
Síða 3:· Allar upplýsingar eiga að vera forskráðar: Pakkaverð
Síða 4:· Allar upplýsingar eiga að vera forskráðar: Ferðaupplýsingar, muna að lesa vel yfir upplýsingarnar, staðfesta skilmálana og smella á halda áfram. Hér er í boði að kaupa forfallagjald.
Síða 5:· Farþegaupplýsingar. Í reitnum fyrir VILDARKLÚBBUR ICELANDAIR á að skrá vildarklúbbsnúmer (kennitölu) þess einstaklings sem er með VISA kort og á 10.000 vildarpunkta til að greiða upp í ferðina. Það þarf ekki endilega að vera farþeginn, heldur sá sem gefur punktana. Ýta því næst á halda áfram.
Síða 6:· Í glugganum,sem stendur í Vinsamlegast notið ekki punktana mína,er valið Fyrir einn(eða tvo) farþega. Þá opnast gluggi til að setja inn notendanafn og lykilorð að vildarklúbb. Athugið að valmöguleikinn Fyrir einn farþega er ekki sýnilegur nema viðkomandi sé með VISA kort og eigi a.m.k. 10.000 vildarpunkta.
Síða 7:· Greiðsla: Skráið inn nafn korthafa og aðrar upplýsingar sem beðið er um. Hér er hægt að velja raðgreiðslur með því að haka við Kortalán. Smellið síðan á Bóka ferð og þar með lýkur ferlinu.
Þeir sem greiða ferð með Mastercard.· Fyrst er pakkaferðin greidd með Mastercard eins og gert er hér að ofan.
· Muna að prenta út greiðslukvittun
· Síðan á að hafa samband við Mastercard og þeir endurgreiða andvirði ferðaávísunarinnar.
Ef einhverjir ætla að athuga með breytingu á heimferð, er miðinn greiddur samkvæmt þessum leiðbeiningum ÁÐUR en hringt er í Icelandair til að breyta.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.5.2010 | 11:40
Lokið -BASAR í NETTÓ föstudaginn 28.maí kl.14:00-19:00
Salan gekk vel. Allar kökurnar seldust. Áttum eftir 2 poka af harðfiski og 10-12 poka af lakkrís!!
þannig að ef þið eruð til í að kaupa poka af lakkrís, þá klárum við dæmið! Ég fór með kassann uppí Akademíu - inn á skrifstofu. Hægt að nálgast KASSANN ef þið viljið kaupa lakkrís, og ég skal láta Mæju vita af því að við ætlum bara að selja þar... (eða er betra plan ? ) kv. Berglind
Pokinn selst á 1000kr.
stelpur endilega koma við í AKAD. og ná sér í lakkrís...! Borga Mæju... ;)
ég (Begga er til í einn poka )
Systa 1 poki
Eva 1 poki
Helga 1 poki
Ósk
Solla 4 poka
Erla 1 harðfiskur !! - Linda tók fiskinn - Þarf að tala við hana.
EINHVERJIR FLEIRI TIL ??
Nettó föstudaginn 28.maí | Iðkendur: | Foreldrar í ábyrgð: |
14:00-15:00 | IngibjörgÞ, ólöfR, ÓlöfB, Sigurbjörg, Rakel, | Þórný, Magga Blöndal |
15.00-16:00 | 1 iðkendur Sólný, ÁsdísB, LouisaÓ, Haukur | Magga |
16:00-17:00 | 2 iðkendur Alexía, Andrea, María | Ása |
17:00-18:00 | Karen Brá,Karlotta, Gunnhildur , | Ósk |
18:00-19:00 | IngunnK, AnitaR, Helga, ElvaD, Olga Ýr, Brynja | Sóley, Berglind (skila borðum í akad/stólum) |
Bloggar | Breytt 1.6.2010 kl. 12:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
17.5.2010 | 10:58
FUNDUR V. FERÐAR - miðv.kvöld 19.maí kl.20:00
Kæru FORELDRAR OG iðkendur,
Fundur var haldinn með foreldrum (iðkendum) miðvikudaginn 19. maí kl. 20.00 Hér í viðhengi eru glærur af fundinum.
Það sem rætt var á fundinum :
- Fargjald- greiðsla miða fyrir 31.maí
- Brottfarardagur - heimkoma
- Tryggingar - hvort allir séu örugglega ekki búnir að skila inn Evrópska trygg.skírteini eða uppl um tryggingar
- Siðareglur FSÍ
- Hámarksupphæð gjaldeyris
- Staða á söfnun
Þeir sem ekki mættu eða hafa fengið blað um siðareglur ferðar, geta prentað það út hér - skrifað undir og látið fararstjóra fá það sem fyrst. -sjá viðhengi
Bloggar | Breytt 6.7.2010 kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.5.2010 | 10:50
Lokið - HREINSUN VIÐ FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKS 29. MAÍ 9.00-12.00
Allir eiga að mæta klukkan 9:00 við Silfurhliðið, sem er hliðið upp af Grænásbrekkunni (gamla Grænáshliðið). Þar verður tekið á móti hópunum og menn sem skipa fyrir verkum. HREINSUN LAUGARDAGINN 29. MAÍ (LÍKLEGA FRÁ 9-12)
Ása og Magga ætla að vera í ábyrgð og mæta með krökkunum. Þær ásamt Villa þurfa að koma með skilríki með sér.
AÐ HREINSUN LOKINNI BÝÐUR KEFAIRPORT OKKUR Í HÁDEGISGRILL !! sá augl. hér neðar:
Bloggar | Breytt 31.5.2010 kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
7.5.2010 | 10:43
DÓSASÖFNUN ;)
Ákveðið var að fara aftur í dósasöfnun
Spurning kom hvort við ættum að gera þetta skipulega og eyða nokkrum kvöldum eftir ákveðnu átaki í hverfi, en þar sem mikið er að gera hjá mörgum/flestum var ákveðið að taka aftur eins dósasöfnun og var síðast.
- Þ.E. HVER IÐKANDI SAFNAR DÓSUM FYRIR 10.000KR.
- 10.000 krónur leggjast inná reikninginn hjá Jónínu fyrir 29. maí
Muna svo að sjálfsagt eru "flest" okkar alveg búin að tæma og þurrausa fjölskyldumeðlimi og vini, ´að þá er alltaf hægt að ganga í hverfin 2 og 2 og biðja um dósir til styrktar fimleikdadeildarinnar ;)
kv.
Begga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.5.2010 | 09:14
LOKIÐ -BERA ÚT BOÐSKORT F. SJÁLFSTÆÐISFL
Kæru iðkendur / foreldrar,
Það var hringt í okkur í gær og fengum upplýsingar að við gætum fengið góðan pening fyrir að bera út til flokksbundna sjálfstæðismanna!! Tókum því - því okkur vantar enn pening og hver fjáröflun skiptir máli!! Ná þarf í búnka til að bera út (Nína skitpir í hverfi - og þetta er ekki í hvert hús!-Oft 2-3 boðskort í sama hús). Hægt er að nálgast boðskortin sem bera á út heim til NÍNU eftir kl. 16.00 í dag.
KORTIN VERÐA AÐ BERAST ÚT Í DAG! ÞVÍ BOÐIÐ ER Á MORGUN ! ÞETTA MÁ EKKI KLIKKA - ENDA TÖKUM VIÐ ÞETTA Í NEFIÐ!
HVERFIN ERU: Keflavík, Njarðvík, Ásbrú, Hafnir.
Fara heim til Nínu kl. 16.00 : Efstaleiti 26 Keflavík sími 421-4226
ATH. ÞEIR SEM EKKI ERU MEÐ, FÁ EKKI ÁGÓÐANN AF ÞESSARI FJÁRÖFLUN, EINS OG ALLTAF HEFUR VERIÐ.
Bloggar | Breytt 17.5.2010 kl. 10:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
3.5.2010 | 09:10
Eurogym official site á Facebook - kíkið á
Ertu búin að skrá þig á síðuna?? :
http://www.facebook.com/#!/eurogympage?ref=ts
kíkja einnig á: www.eurogym2010.com
Bloggar | Breytt 6.7.2010 kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)